Guðrún Helgadóttir
:
Hæstv. forseti. Þetta mál er allsérkennilegt. Það skýtur skökku við að einmitt við þá einu stofnun í landinu sem telst háskólasjúkrahús skuli hjúkrunarfræðingar, og ljósmæður, vera miklu lægra launaðir en á öðrum sjúkrahúsum. Það ætti að vera meira samræmi í því og alla vega ætti starfsfólk á ríkisspítalanum ekki að bera skarðari hlut.
En hér held ég að verði að skoða þessi mál betur. Það er augljóst að hér er hreint og beint um leiðréttingarverkefni að ræða. Það kemur fram að laun eru sannarlega lægri á Ríkisspítölunum fyrir sömu störf og við það getur auðvitað enginn búið. Ég held að hérna þurfi í fyrsta lagi að endurmeta störf hjúkrunarfræðinga. Við komum alltaf að þessu aftur, eins og hér hefur komið fram, að ákveðnar stéttir og ekki síst kvennastéttir verða einhvern veginn afgangs. Það nær ekki nokkurri átt að meðaltal taxtalauna BHMR-félaga sé 94.331 kr. á meðan meðaltal taxtalauna háskólamenntaðra hjúkrunarfræðinga er 79.246 kr. Á þessu er engin vitræn skýring og þetta hlýtur að verða að laga. Jafnframt því sem ljóst er að iðjuþjálfar og sjúkraþjálfar og þær stéttir eru sannarlega betur launaðar.
Við þetta verður ekki unað og það þýðir heldur ekkert að vera með einhverja framtíðarmúsík eins og málin standa núna. Það hlýtur að verða að leysa þetta ákveðna vandamál því vitaskuld má ekki koma til lokunar á því sjúkrahúsi landsins þar sem öll erfiðustu tilvikin koma. Við höfum séð það nýlega að á sama tíma og verið er að skera niður rými fyrir fæðandi konur hefur starfsaðstaða á fæðingardeild Landspítalans verið fyrir neðan allar hellur, bæði starfsfólks og sjúklinga, ef við viljum kalla fæðandi konur sjúklinga sem er kannski óþarfi. En starfsaðstaða starfsfólksins á Ríkisspítölunum fer síversnandi. Það er krafist æ meiri þekkingar af þessu starfsliði og það ber meiri og meiri ábyrgð á rekstri sjúkrahúsanna. (Forseti hringir.) --- Ég er alveg að ljúka máli mínu, frú forseti. Ég skora á hæstv. forsrh. og ríkisstjórnina alla að ganga í að leiðrétta málefni hjúkrunarfræðinga og ljósmæðra á Ríkisspítölunum.