Gunnlaugur Stefánsson
:
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. samgrh. fyrir greinargóð svör og þær upplýsingar sem komu fram í máli hans. Ég vil sérstaklega fagna yfirlýsingu hans um að athuga gaumgæfilega að taka upp reglubundinn snjómokstur á milli Norður- og Austurlands og að það megi gerast strax í næstu viku. Auðvitað skiljum við að á meðan vegurinn þar er eins og hann er getur það orðið erfitt sérstaklega þegar veður hamla. Ég fagna eigi að síður þessari yfirlýsingu ráðherrans og vona að þetta megi takast og strax í næstu viku.
Þetta snertir einnig það sem hv. 4. þm. Norðurl. e. nefndi áðan að reynslan af sölu Ríkisskipa hefur orðið til þess að tengingin á milli Norður- og Austurlands á sjó hefur að nokkru leyti rofnað. Hæstv. samgrh. er nú m.a. að reyna að bregðast við þessu rofi með því að leggja aukna áherslu á að tengja þá betur á landi.
Reynslan af sölu Ríkisskipa virðist á heildina litið vera allgóð eða langtum betri en margir stjórnarandstæðingar spáðu fyrir um þegar þetta mál var mjög í hita umræðunnar á hinu háa Alþingi. Það hefur komið fram að verðið á þjónustunni hefur ekki hækkað og eru frekar dæmi um að það hafi lækkað. Í öðru lagi hafa ekki margir staðir fallið út úr þessu samgönguneti. Þó hefur hv. 5. þm. Vestf. bent á staði sem þarf virkilega að skoða og athuga og ég trúi að hæstv. samgrh. muni gera það. Það má bæta öðru dæmi við, t.d. Breiðdalsvík þar sem skip eru hætt að koma en vörur eru keyrðar frá Stöðvarfirði eða öðrum nærliggjandi höfnum.
Ég vil aftur þakka hæstv. ráðherra svörin.