Skálholtsskóli

108. fundur
Föstudaginn 12. febrúar 1993, kl. 13:45:35 (5080)

     Svavar Gestsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir upplýsingarnar og vildi jafnframt benda honum á að láta fjmrn. vita af því að kirkjueignanefnd sé að störfum og málið sé í traustum og öruggum farvegi áður en fleiri menn verða sendnir til þess að leggja hald á eignir kirkjunnar hjá sýslumannsembættunum í landinu.