Steingrímur J. Sigfússon
:
Hæstv. forseti. Ég óska eftir að hæstv. utanrrh. tali aðeins skýrar. Þegar hann talar um samningsaðilann, á hann þá við viðsemjandann, Evrópubandalagið, og bar að skilja orð hans svo að það væri eingöngu sökum tafa frá þeirri hlið að skjalaskiptunum hefði ekki verið lokið eða er ríkisstjórn Íslands að bíða átekta? Ég spyr hæstv. utanrrh. enn fremur að því hvort hann geti fullvissað þingið um það að skjalaskiptin muni ekki fara fram að óbreyttum aðstæðum í málinu, þ.e. á meðan þessi óvissa ríkir um afdrif EES-samningsins í ljósi þess að Íslendingar hafa augljóslega ekkert nema skaðann af því að samningurinn gangi í gildi á árinu þar sem í honum felast engar hagsbætur fyrir okkur. Einu áhrifin af afgreiðslu eða fullgildingu hans yrðu þau að Evrópubandalagið fengi hér rétt á veiðum á 3.000 tonnum af karfa.