Jóhann Ársælsson
(andsvar)
:
Virðulegur forseti. Það hafa ekki orðið nein sinnaskipti hjá mér svo að ég hafi orðið var við. Ég sagði í upphafi ræðu minnar að það væri meira til framkvæmda á þessu ári heldur en hefði verið í fyrra og það væri enginn vafi. Og ég get endurtekið það hér ef það er ástæða til að gera það. Ég tel að þetta sé í raun og veru allt saman augljóst mál og menn geta farið yfir þær tölur og skoðað þær í krók og kring. Mín niðurstaða er sú að það sé minna til framkvæmda, ef litið er yfir 2--3 ár, en hefði verið ef menn hefðu látið það ógert að vera að hringla í vegáætlun. Og ég tel að við værum að mörgu leyti miklu betur sett, ég tel að það hefði alls ekki átt að fara svona að eins og gert hefur verið. Vegagerðin stendur frammi fyrir því að borga til baka stórkostlega peninga eftir stuttan tíma. Það hefur ekki verið gerð nein grein fyrir því, hvernig menn ætla að fara með það mál og ég tel að það hefði verið rétt að þessu staðið með því að taka þá peninga sem lagðir voru á bifreiðaeigendur núna við gerð fjárlaga að nota þá í vegaframkvæmdir og sleppa því að taka þessi lán. Þannig hefði átt að standa að þessum málum og þannig hefði þjóðin og bifreiðaeigendur sérstaklega orðið miklu ánægðari með þær álögur sem á þær hefðu verið lagðar. Og ég trúi því ekki að hæstv. samgrh. sé ánægður með það að fara út úr samgrn. eftir að hafa verið búinn að safna þar upp stórkostlegum skuldum eins og nú liggur fyrir að verði.