Vegáætlun 1993--1996

109. fundur
Þriðjudaginn 16. febrúar 1993, kl. 16:15:30 (5168)


     Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Það er auðvitað algerlega út í hött að það sé lögbrot að leggja vegáætlun fyrir með þeim hætti sem hér hefur verið gert. Þessu er margsvarað hér í ræðustól, hefur verið gert af öllum ráðherrum á öllum tímum að flytja þáltill. og frumvörp í samræmi við venjur og að fengnu samþykki innan ríkisstjórnar. En það er auðvitað alveg út í hött að það sé lögbrot.