Vegáætlun 1993--1996

109. fundur
Þriðjudaginn 16. febrúar 1993, kl. 16:16:02 (5169)

     Jón Kristjánsson (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Eins og ég tók fram skiptir það meginmáli og það kom ekki fram í máli ráðherra hvort ríkisstjórnin ætlast til þess að þessi skrá, sem lögð er fram með vegáætluninni, sé óbreytanleg. Ég hef heyrt að ríkisstjórnin líti þannig á en það er mikilvægt að það komi hér fram frá hæstv. samgrh. hvort hann lítur svo á. Ég lít náttúrlega svo á að Alþingi eigi að fjalla um þessa skiptingu. En ég segi það jafnframt að það er ólíklegt að Alþingi treysti sér til að gera miklar breytingar á þessari skiptingu eftir að það hefur verið fjallað um hana úti í þjóðfélagingu. Þess vegna eru þessi vinnubrögð náttúrlega alveg óhæf. Alþingi á að sjálfsögðu að fjalla um skiptinguna.