Vegáætlun 1993--1996

109. fundur
Þriðjudaginn 16. febrúar 1993, kl. 16:31:15 (5174)

     Egill Jónsson (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Efnislega kom ekkert fram í þessari ræðu. Ég vil bara geta þess að auðvitað hafa menn gengið frá vegáætlun á Austurlandi áður án þess að vera þar í fullri sátt. Má vel vera að hægt sé að fletta upp einhverju eftir hv. 1. þm. Austurl. í þeim efnum. Við skulum þá líta á það hér við afgreiðslu málsins síðar.