Vegáætlun 1993--1996

109. fundur
Þriðjudaginn 16. febrúar 1993, kl. 17:00:56 (5181)

     Jón Kristjánsson (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Allt ber að sama brunni í þessari umræðu. Að störfum er svokölluð jarðganganefnd. Hún hefur ekki skilað áliti enn þá en mun gera það innan tíðar undir forustu hins ágæta vegamálastjóra okkar og þar koma auðvitað í ljós þeir kostir sem eru fyrir hendi og fyrr en sú nefnd hefur skilað áliti er ekkert hægt að fullyrða um kostnað við jarðgöng, hvorki í gegnum Hellisheiði né annars staðar. Það er mjög einkennilegt að hæstv. samgrh. fari með slíkar tölur og án nokkurs rökstuðnings og án nokkurrar undirstöðu í áliti þeirrar nefndar sem um þetta fjallar.