Vegáætlun 1993--1996

109. fundur
Þriðjudaginn 16. febrúar 1993, kl. 17:02:03 (5182)

     Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Síðasta ræðan er undarleg. Ég hef skýrt frá þeim upplýsingum sem ég hef og væri kannski fróðlegt að hv. þm. skýrði frá því hvaða upplýsingar hann hefur eða skrifað um það í blað sitt ef hann hefur ástæðu til þess að rengja það sem ég hef sagt en það er ekki sagt að ástæðulausu.