Vegáætlun 1993--1996

109. fundur
Þriðjudaginn 16. febrúar 1993, kl. 17:09:12 (5189)

     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Vissulega er rétt að það getur þurft að sækja þekkingu út fyrir landsteinana. En ég tel að í þessu tilfelli hafi það ekki verið athugað fyrst hvort hægt sé að sækja þessa þekkingu hingað eða fá hana hér á landi og þetta er ekki bara um það að ræða að kaupa þekkingu heldur líka um að kaupa vörur, kaupa asfalt til framkvæmda.