Skipulags- og byggingarlög

113. fundur
Mánudaginn 22. febrúar 1993, kl. 15:03:39 (5343)

     Svavar Gestsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég þakka hv. 5. þm. Norðurl. e. fyrir þær upplýsingar sem fram komu í hans máli og staðfestu það að Sjálfstfl. var á móti stofnun umhverfisráðuneytis og dró lappirnar í því og reyndi allt sem hann gat til að stoppa það. Í öðru lagi þótti mér vænt um að hv. 5. þm. Norðurl. e. skyldi ekki gera tilraun til að taka upp hanskann fyrir borgarstjórnarmeirihlutann í Reykjavík. Það fannst mér athyglisvert og til umhugsunar.