Almenn hegningarlög

117. fundur
Fimmtudaginn 25. febrúar 1993, kl. 13:12:42 (5435)

     Dómsmálaráðherra (Þorsteinn Pálsson) :
    Frú forseti. Ég mæli hér fyrir frv. til laga um breytingu á almennum hegningarlögum sem hefur það að markmiði að gera refsiverða háttsemi þeirra sem standa að fíkniefnaviðskiptum án þess að þeir eigi beina aðild að innflutningi eða dreifingu efnanna en þar sem unnt er að sanna að þeir hafi tekið á móti peningum eða öðrum ávinningi af viðskiptunum og einnig til þeirra sem aðstoða við undanskot ávinnings af fíkniefnum án þess að það sé skilyrði að viðkomandi hafi nokkurn ábata af aðstoðinni eða hafi ætlast til slíks ábata. Er lagt til að þau ofangreind brot sem refsað yrði fyrir eftir hegningarlögum geti varðað allt að 10 ára fangelsi og er það sami refsirammi og á við um hin alvarlegri fíkniefnabrot.
    Lagatæknilega krefst þessi breyting þess að ákvæði þessa efnis sé bætt annars vegar við hegningarlögin og hins vegar við lög um ávana- og fíkniefni. Því eru lögð hér fram samhliða tvö frv. sem eru tvær greinar hvort um sig. Lagt er til að nýrri grein, 173. gr. b., verði bætt inn í almenn hegingarlög og nýrri málsgrein í 5. gr. ávana- og fíkniefnalaga sem yrði 2. mgr.
    Rökstuðningurinn fyrir þessari breytingu kemur fram í athugasemdum með frv. til breytinga á hegningarlögum. Þar kemur fram að í umræðum á alþjóðavettvangi um aðgerðir gegn ólöglegum fíkniefnaviðskiptum hefur athyglinni undanfarin ár í auknum mæli verið beint að fjárhagshlið viðskiptanna. Alþjóðleg samstaða er um það að leggja aukna áherslu á fjárhagshlið viðskiptanna og er talið mikilvægt að ná til þeirra sem í reynd standa að viðskiptunum með því að skipuleggja eða fjármagna þau án þess að vera sjálfir neytendur eða koma að öðru leyti beint fram, t.d. sem innflytjendur eða dreifendur. Í þeim tilgangi, að

ná til þeirra sem standa að skipulögðum fíkniefnaviðskiptum t.d. með fjármögnun eða með því að koma ágóða undan, hafa víða verið lögfest sérstök refsiákvæði.
    Hinn 10. júní 1991 samþykkti ráð Evrópubandalagsins tilskipun nr. 91/308 um ráðstafanir gegn því að fjármálakerfið sé notað til peningaþvættis sem svo hefur verið kallað. Tilskipun þessi öðlaðist gildi 1. jan. 1993. Samkvæmt samningnum um Evrópskt efnahagssvæði er Ísland skuldbundið til að hafa lagað löggjöf sína að þessari tilskipun Evrópubandalagsins fyrir gildistöku EES-samningsins.
    Tilgangurinn með framangreindri tilskipun Evrópubandalagsins um peningaþvætti er aðallega sá að samræma aðgerðir aðildarríkjanna til að reyna að koma í veg fyrir að fjármálastofnanir verði notaðar til að þvætta ágóða afbrotastarfsemi og að hindra að aukið frelsi í fjármagnsflutningum og fjármálaþjónustu verði notað til peningaþvættis.
    Skv. 2. gr. tilskipunarinnar skulu aðildarríkin tryggja að peningaþvætti sé bannað. Það er ófrávíkjanleg krafa að aðildarríkin hafi reglur um peningaþvætti vegna fíkniefnabrota.
    Samkvæmt tilskipuninni er aðildarríkjunum í sjálfsvald sett með hvaða hætti þau setja reglur um peningaþvætti vegna annarra afbrota. Það er því ekki fortakslaus krafa að sett séu refsiákvæði um peningaþvætti en refsiákvæði er raunhæfasta leiðin til að tryggja að bannið við peningaþvætti verði virt.
    Í tilskipun Evrópubandalagsins um aðgerðir gegn peningaþvætti er hugtakið skilgreint og vísast um það nánar til athugasemda með frv.
    Á þessu þingi hefur verið lagt fram frv. til laga um aðgerðir gegn peningaþvætti en í því frv. er lagt til að lögfest verði ákvæði varðandi fjármálastofnanir sem nauðsynleg eru talin til að fullnægja skilyrðum í áðurgreindri tilskipun Evrópubandalagsins.
    Íslensk refsilöggjöf um ávana- og fíkniefni er tvíþætt. Í fyrsta lagi eru sérrefsilög, þ.e. lög um ávana- og fíkniefni nr. 65/1974, og í öðru lagi eru ákvæði í 173. gr. a. almennra hegningarlaga um alvarlegri fíkniefnabrot.
    Skv. 1. mgr. 2. gr. laganna um ávana- og fíkniefni er varsla og meðferð ávana- og fíkniefna óheimil á íslensku forráðasvæði samkvæmt því sem nánar segir í 4. mgr. greinarinnar en samkvæmt henni er innflutningur, útflutningur, sala, kaup, skipti, afhending, móttaka, framleiðsla, tilbúningur og varsla ávana- og fíkniefna bönnuð. Brot á lögunum varðar sektum, varðhaldi eða fangelsi allt að 6 árum. Heimilt er að refsa fyrir brot hvort sem þau eru framin af ásetningi eða gáleysi og ákvæði almennra hegningarlaga um tilraun og hlutdeild gilda einnig um brot á lögunum.
    Í 1. mgr. 173. gr. a. er ákvæði um að sá sem andstætt lögum um ávana- og fíkniefni lætur mörgum mönnum í té ávana- og fíkniefni eða afhendir þau gegn verulegu gjaldi eða á annan sérstaklega saknæman hátt skuli sæta fangelsi allt að tíu árum.
    Skv. 2. mgr. sömu greinar skal sá sæta sömu refsingu sem gegn ákvæðum nefndra laga framleiðir, býr til, flytur inn, flytur út, kaupir, lætur af hendi, tekur við eða hefur í vörslum sínum ávana- og fíkniefni í því skyni að afhenda þau á þann hátt sem segir í 1. mgr.
    Vafi er talinn leika á því að hvaða leyti hægt sé að refsa þeim fyrir hlutdeild í fíkniefnabroti sem t.d. tekur við, geymir eða flytur ágóða af fíkniefnabroti.
    Skv. 22. gr. hegningarlaga þar sem fjallað er um hlutdeild skal hverjum þeim refsað sem með liðsinni í orði eða verki, fortölum, hvatningu eða á annan hátt tekur þátt í því að brot samkvæmt lögunum er framið. Hlutdeildarákvæðið tekur fyrst og fremst til hlutdeildar í verknaði sem til er kominn áður en brot er framið eða samtímis framningu þess. Almennt er aðstoð sem veitt er eftir það tímamark refsilaus nema hún sé veitt samkvæmt samkomulagi sem gert var fyrir verknaðinn.
    Með hliðsjón af framansögðu verður að telja að almennt sé ekki unnt samkvæmt gildandi lögum að refsa fyrir viðtöku ágóða af fíkniefnasölu. Það sama gildir um flutning, geymslu og aðra sambærilega aðstoð sem kemur til eftir að frumbrotið er framið. Í 1. gr. frv. er lagt til að lögfest verði refsiákvæði um viðtöku, geymslu, flutning ávinnings af fíkniefnabrotum o.s.frv.
    Samhliða frv. þessu er svo flutt, eins og áður greinir, frv. til breytingar á lögum um ávana- og fíkniefni, nr. 65/1974, þar sem lögð er til sams konar viðbót við þau lög og gert er ráð fyrir í þessu frv. Slíku refsiákvæði er ætlað að hamla gegn fíkniefnaviðskiptum og það getur einnig takmarkað möguleika milliliða og leppa að tryggja sér ávinning af fíkniefnaviðskiptum. Þá styrkir slíkt ákvæði réttarvörslu gagnvart þeim sem standa að baki fíkniefnabrotum með fjármögnun. Samkvæmt ákvæðinu verður einnig hægt að refsa þeim sem taka við ágóða af fíkniefnabrotum án þess að sannað verði að viðskiptin hafi verið fjármögnuð með peningaláni eða sambærilegri fyrirgreiðslu.
    Í þessu sambandi er rétt að taka fram að kunnáttusamleg fíkniefnaviðskipti eru skipulögð í mörgum sjálfstæðum liðum þar sem sjaldnast liggur fyrir vitneskja um aðra sem taka þátt í þeim.
    Frú forseti. Ég hef í aðalatriðum gert grein fyrir meginefni og tilgangi þessa frv. og legg til að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umr. og hv. allshn.