Herjólfsdeilan

117. fundur
Fimmtudaginn 25. febrúar 1993, kl. 16:02:34 (5470)

     Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) :
    Hæstv. forseti. Það kemur stundum fyrir að mistök eigi sér stað. Ég hef ekki haft tíma til að kynna mér hvar þau liggja en ég hygg að hæstv. forseti hafi vel getað séð hvort ég væri í þingsalnum þegar hann leyfði umræðuna. Ég er ekki svo fyrirferðarlítill að það hefði átt að fara fram hjá forseta ef ég var fjarverandi.