Kaup á björgunarþyrlu

117. fundur
Fimmtudaginn 25. febrúar 1993, kl. 16:27:45 (5481)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Hv. 8. þm. Reykn. óskar eftir að bera af sér sakir.
    Forseti gerir sér ekki ljósa grein fyrir hvaða sakir hv. þm. vill bera af sér. En hann getur hins vegar sett sig á mælendaskrá. Er það ekki skynsamlegri leið til að fjalla málefnalega um þetta mál? Ef hv. þm. telur sig þurfa að bera af sér sakir þá mun forseti gefa honum orðið og hlusta á þau.