Kaup á björgunarþyrlu

117. fundur
Fimmtudaginn 25. febrúar 1993, kl. 17:12:44 (5496)

     Forsætisráðherra (Davíð Oddsson) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Ég get skýrt frá því og sagt það sem ég þegar hef sagt. Það stendur ekki annað til heldur en að ríkisvaldið og ríkisstjórnin geri samninga um þyrlukaup á þessu ári alveg óháð því hvernig þessi hv. þm. lætur, óháð því hvernig hann reynir að slá sig til riddara með þessu máli, með mjög ósmekklegum og ómaklegum hætti.