Varamaður tekur þingsæti

118. fundur
Föstudaginn 26. febrúar 1993, kl. 10:31:01 (5521)

     Forseti (Guðrún Helgadóttir) :
    Forseta hefur borist eftirfarandi bréf:
    ,,Þar sem ég vegna sérstakra anna get ekki sótt þingfundi á næstunni leyfi ég mér með vísan til 2. mgr. 53. gr. laga um þingsköp Alþingis að óska þess að 1. varamaður Sjálfstfl. í Austurl., Hrafnkell A. Jónsson, formaður Verkalýðsfélagsins Árvakurs á Eskifirði, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.
Egill Jónsson, 3. þm. Austurl.``


    Hrafnkell A. Jónsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa.