Forseti (Guðrún Helgadóttir)
:
Eins og þegar hefur fram komið hefur forseti lýst þeirri skoðun sinni að réttur þeirra níu hv. þm. sem fram hafa borið ósk um þessa málsmeðferð sé ótvíræður. En með tilliti til þess að það mun vera í fyrsta skipti sem á þetta ákvæði reynir eftir að þingsköpum var breytt, þykir mér við hæfi að taka slíka ákvörðun ekki hér úr forsetastóli fyrr en rætt hefur verið við forseta þingsins og aðra þá aðila sem eru réttbærir til slíkrar ákvörðunar og ég leyfi mér því ef því verður ekki mótmælt að fresta þessum fundi eða gera hlé á þessum fundi í 15 mínútur. --- [Fundarhlé.]
Vegna bréfs þess sem barst forseta þingsins hér fyrr í morgun hefur verið haldinn samráðsfundur með forsetum þingsins, þingflokksformönnum og bréfriturum ásamt hæstv. ráðherra og fallist var á að verða við þeirri ósk að hv. efh.- og viðskn. fái mál þetta sem hér er á dagskrá, frv. til laga um Seðlabanka Íslands, til frekari athugunar og mun síðar verða rætt við hv. formann efh.- og viðskn. um hversu langan tíma nefndin þarf til þess að verða við beiðni bréfritara. Þess vegna er að þessari niðurstöðu fenginni umræðu um 8. dagskrármálið frestað þar til hv. efh.- og viðskn. hefur athugað málið.