Frágangur fjárlaga 1993

120. fundur
Fimmtudaginn 04. mars 1993, kl. 11:03:10 (5583)

     Jón Kristjánsson :
    Herra forseti. Vegna þeirra ummæla sem hafa fallið um skýringar fjmrn. á þessu máli á fundi fjárln. 18. des. vil ég láta það koma fram að það er rétt sem hefur verið sagt hér í umræðum. Það var aðeins skýrt frá fyrirhugaðri skattlagningu, farið yfir þau mál, en það var ekki rætt um hvernig þetta yrði sett upp bókhaldslega í fjárlögum á þeim fundi. Ég vil að þetta komi fram í þessari umræðu án þess að ég sé að lengja hana að öðru leyti.