Samgönguráðherra (Halldór Blöndal)
(andsvar)
:
Hæstv. forseti. Hv. þm. Ólafur Þ. Þórðarson er rökfastur og skýr í sínum málflutningi, en hitt er verra að honum láðist að bera þetta frv. sem hér liggur fyrir saman við gildandi lög og gerði þess vegna of mikið úr þeim breytingum sem hann uggði að samþykkt frv. gæti haft í för með sér. Um hina 14. gr. og þann helming sem tæpur helmingur ræðu hans fjallaði um vil ég aðeins segja það að samkvæmt gildandi lögum er gert ráð fyrir því að það vald sem í frv. er miðað við helming er miðað við aukinn meiri hluta eða 66,66% þannig að hér er komið nokkuð til móts við það sem þingmaðurinn hélt fram og hygg ég því að hann vilji styðja það mál.
Um 32. gr. þar sem hann talaði um land sem þjóðveg sem færi í gegnum, óskipulagt svæði, þá er það ákvæði 32. gr. samhljóða því ákvæði sem er í gildandi vegalögum. Þegar hann talar um 33. gr. og spyr hversu margir ferkílómetrar séu nær vegi 30 metra frá miðlínu stofnvega og 15 metra frá miðlínu annarra þjóðvega svara ég því hreinskilnislega að um það hef ég ekki hugmynd, enda hafði mér ekki dottið í hug að athuga það. Hitt liggur ljóst fyrir að greinin fjallar um það að reyna að tryggja öryggi um vegi, bæði fyrir vegfarendur og þá sem eru nálægt vegunum, eiga leið þar um, þannig að hér er um öryggisákvæði að ræða sem eru mjög samhljóða 74. gr. vegalaga og og hið sama er raunar að segja um þau atriði sem hann ræddi í sambandi við girðingar og viðhald á þeim. Þau eru að mestu samhljóða 70.--73. gr. gildandi vegalaga. Ég býst við að eftir að þessar upplýsingar liggja fyrir verði hugur hv. þm. mildari til þessa frv. heldur en ella mundi.