Tækniskóli Íslands

123. fundur
Mánudaginn 08. mars 1993, kl. 16:01:47 (5773)

     Gunnlaugur Stefánsson (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Það er nú ekki langur tími til andsvars í svo stóru máli sem þessu. En hér er hv. þm. Svavar Gestsson að blanda saman tveimur skyldum málum. Hvað varðar afstöðu Alþfl. til skólagjalda þá er engin breyting á afstöðu Alþfl. með þessu frv. Það hlýtur hv. þm. Svavari Gestssyni að vera ljóst og hann hefur heldur ekki svarað spurningu minni um það hvort það var hann sem hafði forustu um að setja lögin nr. 57/1988, um framhaldsskóla, þar sem heimilað var í fyrsta sinn að setja skrásetningargjöld í framhaldsskóla.