Verkaskipting í ríkisstjórninni

124. fundur
Þriðjudaginn 09. mars 1993, kl. 13:48:35 (5785)

     Jón Kristjánsson :
    Virðulegi forseti. Ég vil að enginn misskilningur sé í því sambandi að ég var ekki að biðja um að mér væri gefin trygging fyrir því að ríkisstjórnin sitji út kjörtímabilið. Náttúrlega væri best að ríkisstjórnin færi frá sem allra fyrst, ekki aðeins nokkrir ráðherrar heldur ríkisstjórnin öll. Það vildi ég að kæmi fram áður en umræðunni lýkur.