Tækniskóli Íslands

124. fundur
Þriðjudaginn 09. mars 1993, kl. 14:25:42 (5800)

     Menntamálaráðherra (Ólafur G. Einarsson) (andsvar) :
    Hæstv. forseti. Það er fullyrt þrátt fyrir mínar yfirlýsingar að eitthvað annað búi að baki, þ.e. að

nemendur taki þátt í almennum rekstri skólans. Ég verð að láta það þá eiga sig hvort hv. þm. tekur mark á orðum mínum eða ekki.
    En í sambandi við þessa innheimtu skólagjalda sem fer svona fyrir hjartað á hv. þm. Valgerði Sverrisdóttur. Ef ég veit rétt þá á hún sæti í skólanefnd Samvinnuháskólans á Bifröst og hún mundi kannski vilja upplýsa hver skólagjöldin eru þar, hver það er sem ákveður þau og hvort menntmrn. eða menntmrh. komi eitthvað nærri þeirri ákvörðun.