Tækniskóli Íslands

124. fundur
Þriðjudaginn 09. mars 1993, kl. 15:03:36 (5807)


     Svavar Gestsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Þetta er greinilega erfitt mál. Hv. þm. skilur ekki hvað hann er að gera og það á kannski að fyrirgefa þeim sem vita ekki hvað þeir gera og það skal ég gera. En ég mun halda áfram að leiða honum fyrir sjónir að hann er á algerum villigötum. Hann er að kenna börnum nú um þessar mundir að þau eigi að leitast við af fremsta megni að gera tiltekna hluti. Ég tel að hann eigi eins og við allir hv. þm. að leitast við af fremsta megni að segja satt og snúa ekki vísvitandi út úr hlutunum.