Tækniskóli Íslands

124. fundur
Þriðjudaginn 09. mars 1993, kl. 15:21:30 (5813)

     Menntamálaráðherra (Ólafur G. Einarsson) (andsvar) :
    Herra forseti. Ég hef ekki við höndina sundurliðun á sértekjum Tækniskólans en það er alveg ljóst að það sem reiknað kann að hafa verið með í fjárlögum vegna skólagjalda verður ekki innheimt nema þessi heimild fáist. Það liggur alveg ljóst fyrir. Ég hef heldur ekki upplýsingar um framlag ríkisins til Samvinnuháskólans við höndina.