Þvottahús Ríkisspítalanna

124. fundur
Þriðjudaginn 09. mars 1993, kl. 20:06:01 (5842)

     Svavar Gestsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Mér finnst vissulega vænt um það að hæstv. heilbrrh. ætlar að fylgja ýmsum þeim niðurstöðum og vill gjarnan sem ég hef komist að fyrr á minni ævi. Mér finnst vænt um það og það er nýlunda fyrir mig að heyra það. En ég skora á hann að gera það ekki alveg blint. Ég mundi a.m.k. ekki gera það sjálfur að því er þessi ákvæði varðar vegna þess að Hæstiréttur Íslands hefur fellt þau úr gildi í raun.