Karl Steinar Guðnason
:
Virðulegi forseti. Ég tel alveg fráleitt að banna dragnótaveiðar. Þetta er fiskur sem er ónýttur ella og veita þessar veiðar mikla atvinnu og mikil verðmæti koma upp úr sjó.
Ég tel að varla sé nokkuð eins mikið rannsakað og þessar veiðar. Þær hafa verið rannsakaðar mjög lengi og ítarlega. Ég tel hins vegar að bátarnir séu of margir sem hafa stundað þessar veiðar. Það var byrjað á veiðunum með tveim bátum. Síðan var þeim aðeins fjölgað og nú eru þeir 14 sem er dæmigert um stefnu framsóknarmanna í þessum málum að eyðileggja þessar veiðar með því að fjölga bátum. (Gripið fram í.) Þeir eru of margir. Ég bendi á að þetta var gert í tíð fyrri ráðherra, hv. þm.
Ég vil líka koma inn á það ( Forseti: Ég vil vekja athygli hv. þm. á því að tími hans er liðinn og bið hann að ljúka máli sínu.) að 15% af veiðunum má vera bolfiskur. Ég vil geta þess að útgerðarmaður á Suðurnesjum stóð í löngu stappi við sjútvrn. á sínum tíma um það að ( Forseti: Ræðutíminn er liðinn, hv. þm.) skata væri ekki bolfiskur.