Fyrirspyrjandi (Valgerður Sverrisdóttir)
:
Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. menntmrh. fyrir þetta svar. Mér finnst mikilvægt að það komi fram að það geti átt sér stað breyting á lögum ef þörf krefur því mér sýnist að nú þegar hafi það sýnt sig að þær úthlutunarreglur sem settar hafa verið samræmist ekki því sem kemur fram í þessari skýrslu.
Ég vil leyfa mér í þessu sambandi að benda á 2. gr. í lögunum um lánasjóðinn, en þar segir, með leyfi forseta:
,,Stjórn sjóðsins`` þ.e. lánasjóðsins ,,setur nánari reglur um til hvaða sérnáms skuli lánað.`` Mér segir svo hugur að það væri eðlilegra að þetta vald væri í höndum ráðherra væri hverju sinni þannig að ekki væri hætta á að ósamræmi yrði milli stefnu stjórnvalda í menntamálum og úthlutunarreglna lánasjóðsins.
Það hefur t.d. sýnt sig núna á þessum vetri að úthlutunarreglur lánasjóðsins samræmast illa þeim áherslum sem koma fram í þessari áfangaskýrslu og hafa komið fram í máli hæstv. menntmrh. hvað eftir annað.
Það kom fram í máli hæstv. ráðherra fyrir nokkrum dögum í þinginu að frumgreinadeildir Tækniskólans og Samvinnuháskólans væru til sérstakrar meðferðar og þar sem þær teljast ekki lánshæfar núna samkvæmt úthlutunarreglunum og ég þakka það, en þessar brautir hafa að miklu leyti nýst fólki úr atvinnulífinu til þess að sækja stutt og starfstengt nám og einnig iðnaðarmönnum til þess að afla sér viðbótarmenntunar. Hér er eiginlega um að ræða dæmigert tæknistúdentspróf samkvæmt tillögum 18 manna nefndarinnar.
Þá má nefna að fornámsdeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands og Myndlistaskólans á Akureyri eru ekki lánshæfar. Allir sem hyggja á nám í þessum skólum þurfa að fara í fornámsdeildirnar nema þeir komi úr listadeild Fjölbrautaskólans í Breiðholti eða samsvarandi deild í Menntaskólanum á Akureyri. Það má taka fram að flestir nemendur, sem stunda nám í sérgreinum Myndlista- og handíðaskólans, eru með stúdentspróf, um 40 talsins. Mér er kunnugt um að það var gerð undanþága á þessum vetri en eftir því sem úthlutunarreglurnar kveða á um er ekki útlit fyrir annað en að það verði ekki gert síðar. Það má segja að söng-, tónlistar- og leiklistarnámi hafa verið settar mjög þröngar skorður hvað lánshæfi varðar.
Þá vil ég í þessu sambandi líka benda á að engin langskóladeild hefur verið skorin niður og má því segja að verið sé að beina fólki enn frekar í langskólanám. Ég vil í því sambandi minna á að háskólarektor lýsti þeirri skoðun sinni á síðustu háskólahátíð að langskólanámi hafi verið gert of hátt undir höfði. Í háskólanum eru svokallaðir núlláfangar sem eru í sjálfu sér ekkert annað en framhaldsskólanám en þeir eru lánshæfir vegna þess að þeir eru í háskólanum og þarna er ósamræmi. ( Forseti: Ég verð að grípa fram í fyrir hv. þm.) Ég vil benda hæstv. forseta á það að það hefur tíðkast hér í þinginu og er fyrir því allnokkur hefð að bjallan sé notuð við tækifæri sem þetta. ( Forseti: Ég verð að benda hv. þm. á að tími hennar er liðinn og enn frekar að ítreka að bjalla er hér notuð en þegar hv. þm. virðast ekki heyra í henni, þá verður forseti að grípa til annarra ráða og hann á þá ekki annað en röddina eftir.)