Stálvinnslan hf.

126. fundur
Fimmtudaginn 11. mars 1993, kl. 12:57:16 (5946)

     Iðnaðarráðherra (Jón Sigurðsson) :
    Virðulegur forseti. Eins og fram hefur komið í umærðunum um þessa fsp. hefur flest það verið gert af opinberri hálfu sem eðlilegt getur talist til þess að tryggja endurreisn þessa rekstrar á vitrænum fjárhagslegum grundvelli. Eins og fram hefur komið bind ég vonir við að það takist. Ég vil taka það sérstaklega fram að lánastofnanirnar, sem þarna eiga hlut að máli og hafa kannski nokkuð óvænt eignast þetta fyrirtæki fyrir lítið brot af fjárfestingakostnaðinum, Búnaðarbankinn og Iðnþróunarsjóður, hafa sýnt á því góðan vilja að finna þarna skynsamlega lausn um leið og þær gæta að sjálfsögðu hagsmuna sinna stofnana.