Fræðslustörf um gigtsjúkdóma

127. fundur
Fimmtudaginn 11. mars 1993, kl. 17:30:49 (5992)

     Margrét Frímannsdóttir :
    Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að lengja þessa umræðu svo neinu nemur, enda er greinargerð og rökstuðningur með þessari þáltill. afar vel unnin. Ég kem hér fyrst og fremst til þess að lýsa stuðningi mínum við þessa þáltill. Ég trúi ekki öðru en hæstv. heilbrrh. sýni henni fullan skilning og stuðning því hann þekkir síendurtekin beinbrot betur en flestir aðrir og ef marka má orð hv. þm. Jóns Helgasonar, þá hefur

hæstv. heilbrrh. ekki borðað nægjanlega hollan mat eða drukkið nógu mikla mjólk og er þess vegna beinþunnur.