Umhverfisskattar

127. fundur
Fimmtudaginn 11. mars 1993, kl. 19:09:43 (6019)


     Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (andsvar) :
    Virðulegur forseti. Við erum greinilega ekki á sama máli vegna þess að ég held að það þurfi líka þrýsting frá sveitarfélögunum á fyrirtækin til að draga úr mengun. Ef sá þrýstingur er ekki fyrir hendi sem mér sýnist ekki vera í þessari þál. þá held ég að þetta muni ekki skila þeim árangri sem hv. þm. virðist þó vera að stefna að.