Eiginfjárstaða innlánsstofnana

131. fundur
Miðvikudaginn 17. mars 1993, kl. 16:54:36 (6112)

     Kristín Ástgeirsdóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég get tekið undir það að ég held að það hafi verið þörf á því að bregðast skjótt við, en spurningin er, hve skjótt? Mér finnst að atburðarásin hafi endurspeglað helst til mikið óðagot í ríkisstjórninni og ég hefði heldur viljað sjá að menn hefðu farið svolítið rólegar í sakirnar.