Virðulegi forseti. Eins og kunnugt er tóku ný lög um vernd barna og ungmenna gildi um síðustu áramót og því er ekki langur tími liðinn síðan yfirstjórn þessa málaflokks
fluttist frá menntmrn. til félmrn. Í tilefni fsp. hv. þm. vil ég varpa ljósi á helstu viðfangsefni ráðuneytisins í barnaverndarmálum frá því að málaflokkurinn færðist á mitt ábyrgðarsvið.
Rétt er að taka það fram að félmrn. hófst þegar handa á liðnu ári við undirbúning þess að takast á við þennan málaflokk. Helstu viðfangsefni voru þrjú: Samstarf við Barnaheill vegna reksturs heimilis fyrir vegalaus börn, undirbúningur að rekstri vistheimilis að Árbót og afnám daggjalda sveitarfélaganna vegna vistunar unglinga á deildum Unglingaheimilis ríkisins.
Tveimur síðarnefndu þáttunum er lokið en enn er unnið að undirbúningi heimilis fyrir vegalaus börn í samvinnu við samtökin Barnaheill. Frá áramótum hefur einkum verið unnið að eftirtöldum verkefnum: Skipun barnaverndarráðs Íslands samkvæmt nýjum lögum. Sett var ný reglugerð fyrir Unglingaheimili ríkisins og skipuð ný stjórn þess. Unnið hefur verið að undirbúningi þess að setja á stofn lokaða deild fyrir síbrotaunglinga, en ríkisstjórnin hefur ákveðið að verja til þess 20 millj. kr. á þessu ári.
Varðandi það atriði sem fyrirspyrjandi spyr um, þ.e. leiðbeiningar og ráðgjöf við barnaverndarnefndir vil ég upplýsa eftirfarandi:
Félmrn. hefur staðið fyrir námskeiðum víða um landið fyrir félagsmálanefndir og barnaverndarnefndir um framkvæmd laga um félagsþjónustu sveitarfélaga. Á þessum námskeiðum hafa hin nýju barnaverndarlög verið kynnt í aðalatriðum, einkum þau ákvæði er lúta að breyttri stjórn og skipulagi, svo og stækkun barnaverndarumdæma. Námskeiðin hafa verið haldin á Patreksfirði, Ísafirði, Höfn í Hornafirði, Egilsstöðum, Blönduósi, Sauðárkróki, Borgarnesi og Stykkishólmi. Framhald verður á þessum námskeiðum á þessu ári.
Í janúarmánuði var sent til allra sveitarfélaga sérstakt umburðarbréf þar sem vakin var athylgi á ákvæðum 6. gr. barnaverndarlaganna varðandi stækkun barnaverndarumdæma og ákvæðum um kosningar í barnaverndarnefndir. Frá áramótum hefur félmrn. sinnt ráðgjöf við barnaverndarnefndir varðandi meðferð einstakra barnaverndarmála eftir því sem eftir hefur verið leitað og í samræmi við ákvæði hinna nýju laga. Ýmis áform eru uppi af hálfu ráðuneytisins um frekara starf á þessu sviði. T.d. verða haldin sérstök námskeið um meðferð barnaverndarmála fyrir fulltrúa í barnaverndarnefndum og starsfólk þeirra. Jafnframt er stefnt að útgáfu handbókar í barnaverndarmálum. Þegar reglugerðir með lögunum verða tilbúnar verða þær að sjálfsögðu kynntar sérstaklega. Þá gerir ráðuneytið ráð fyrir því að aðstoða sveitarfélögin í að sameinast um kosningu barnaverndarnefnda og stækkun barnaverndarumdæma í samræmi við 6. gr. laganna þannig að grundvöllur skapist fyrir því að þær hafi aðgang að fagfólki til að sinna þessum málum en það er undirstaða þess að unnið sé að framkvæmd hinna nýju laga og er því forgangsmál.
Ég vænti þess að ég hafi svarað því sem um er spurt í þessari fsp.