Hvalveiðar

133. fundur
Fimmtudaginn 18. mars 1993, kl. 17:22:12 (6235)

     Jón Kristjánsson (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Ég skil andsvar hv. 3. þm. Reykv. á þann veg að hann styðji þann feril sem er í þessum málum nú og vilji vinna að því að NAMMCO verði sá vettvangur sem við vinnum á í þessum málum. Mér finnst það skipta mestu máli og þarf í rauninni ekki miklu að bæta við hvatningarorð mín áðan, að vinna saman, snúa saman bökum í málinu og mynda þar eina fylkingu.