Eiginfjárstaða innlánsstofnana

135. fundur
Föstudaginn 19. mars 1993, kl. 14:56:40 (6287)

     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) (andsvar) :
    Frú forseti. Ég vildi aðeins benda á að hv. 5. þm. Vestf. hlýtur að hafa mismælt sig eða misskilið eitthvað þegar hann sagði að í þessu efni lægju upplýsingar tala um það að Landsbankinn ætlaði að afskrifa 10,3 milljarða í útlánum á liðnu ári og því sem nú er að líða. Þetta er algerlega fjarstæðukennt og á sér enga stoð í því efni sem hér hefur verið rætt. Ég vildi eingöngu láta þetta koma fram því að ég vil alls ekki skilja það eftir hér í umræðunni að þessari fjárhæð hafi ekki verið mótmælt.