Seðlabanki Íslands

140. fundur
Þriðjudaginn 23. mars 1993, kl. 18:17:26 (6390)


     Viðskiptaráðherra (Jón Sigurðsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. hv. 6. þm. Norðurl. e. virðist ekki hafa tekið eftir því sem fram hefur komið frá þeim sem hér stendur og reyndar öðrum ráðherrum ríkisstjórnarinnar um gengismálefnin því þegar á liðnu hausti þegar umrótið á evrópskum gjaldeyrismarkaði stóð sem hæst var þetta sagt alveg skýrt og skorinort. Þess vegna er ég hér aðeins að endurtaka það sem áður hefur komið fram.