Einar K. Guðfinnsson
:
Virðulegi forseti. Það vandamál sem við erum að ræða um er auðvitað ekki nýtt af nálinni. Það sem gerði það hins vegar að verkum að það knúði mjög á um að tekið væri mjög fast á þessu máli núna er að sá hópur barna og unglinga, er um ræðir, er núna stærri en nokkurn tíma áður. Þess vegna var ekki undan því vikist að taka alveg sérstaklega á því máli.
Það sem þarf að leggja áherslu á í þessu sambandi er í fyrsta lagi nauðsyn þess að bregaðst mjög skjótt við þeim mikla vanda sem var kominn upp. Auðvitað varð ekki þessi ógæfulegi atburður við Meðalfellsvatn einn og sér til þess að ákveðið var að opna þetta lokaða meðferðarheimili heldur hitt að hér hafði verið að þróast mjög alvarlegt mál. Jafnframt þarf líka að leggja mjög mikla áherslu á að um er ræða bráðabirgðaráðstöfun í þeim skilningi sem hún er gerð núna vegna þess að það er jafnframt ljóst að verið er að endurskoða þessi mál alveg frá grunni. Fyrir þessi börn erum við auðvitað með margs konar lausnir og margs konar úrræði sem eru nú þegar til staðar eins og fram hefur komið. Mér hefur talist svo til að ekki séu færri en átta heimili eða stofnanir sem taki við börnum sem á ýmsan hátt eiga við erfiðleika að stríða. Nú mun það vera þannig að á vegum félmrn. hefur Hagsýslu ríkisins verið falið að fara sérstaklega ofan í þessi mál og athuga með hvaða hætti hægt sé að endurskipuleggja þau. Á meðan sú endurskipulagning stendur yfir hefur verið gripið til þeirrar bráðabirgðalausnar sem fólst í því að setja á stofn þetta lokaða meðferðarheimili sem hér hefur verið til umræðu.
Ég er alveg sammála því, sem fram hefur komið, að það virkar stundum eins og við grípum til örþrifaráða þegar vandamálin steðja að okkur. Enda þótt stundum kunni að vera nauðsynlegt að grípa til skyndilausna er engu að síður mikilvægt að við tökum málin núna til heildarendurskoðunar eins og verið er að gera og henni sé hraðað til þess að við nýtum þá miklu peninga sem við erum að leggja í þessi mál sem best fyrir þau börn sem á þeirri meðferð þurfa að halda.