Vegaframkvæmdir í Vestur-Barðastrandarsýslu

149. fundur
Fimmtudaginn 01. apríl 1993, kl. 10:50:13 (6640)

     Samgönguráðherra (Halldór Blöndal) :
    Herra forseti. Ég vil aðeins ítreka það sem ég sagði áðan að ég tel nauðsynlegt að flýta veginum til Brjánslækjar eftir mætti vegna þeirra miklu þýðingar sem hann hefur fyrir þetta atvinnusvæði. Það hlýtur mjög að koma til athugunar við endurskoðun á langtímaáætlun á næsta ári.