Ráðstafanir til að efla fiskeldi

150. fundur
Fimmtudaginn 01. apríl 1993, kl. 16:01:33 (6712)


     Árni M. Mathiesen (andsvar) :
    Frú forseti. Ég verð að segja það að mér þótti vænt um að hv. þingflokksformaður Alþfl. skyldi sérstaklega vekja athygli á 2. lið tillögunnar sem varðar orkuverð og mér þykir afar leiðinlegt ef hann efast um vilja ríkisstjórnarinnar til þess að taka á þessu máli. En til þess að herða ríkisstjórnina í því að lækka orkuverðið, þá vil ég benda honum á að ræða það sérstaklega við flokksmann sinn, hæstv. iðnrh. og flokksmann sinn, 1. varaþm. Alþfl. í Reykn. sem situr í stjórn Landsvirkjunar.