Frsm. meiri hluta iðnn. (Össur Skarphéðinsson)
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Fyrir okkur sem upplifðum jarðhræringarnar í Framsfl. í tengslum við EES-samninginn er fróðlegt að fá hér upplýsingu um það frá hv. þm. Finni Ingólfssyni að þar sé alltaf allt í sátt og samlyndi. Við höfum aldeilis orðið vör við þá sátt sem þar ríkir.
Það liggur fyrir að hv. þm. Finnur Ingólfsson gat ekki hrakið að enginn kjarasamningur hefur verið brotinn. Hæstv. fjmrh. gaf yfirlýsingar í fyrra og þeim var ekki mótmælt af forustumönnum BSRB. Það liggur fyrir. Það getur vel verið að einhver hafi hvíslað því í eyru hv. þm. Finns Ingólfssonar að þarna hafi verið um einhverjar mistúlkanir að ræða. Eigi að síður liggur það fyrir að þessum yfirlýsingum var ekki mótmælt. Síðan er það merkilegt að hv. þm. gefur lítið fyrir það að hans eigin flokkur hefur þrisvar sinnum átt aðild að lagasetningu um nákvæmlega sama ákvæðið og hann er núna að mótmæla.
Ég vil beina þeirri vinsamlegu ábendingu til hv. þm., vegna þess að mér er hlýtt til hans og ég er viss um að hann á mikla framtíð fyrir sér innan Framsfl. og satt að segja vona ég það, að hann kynni sér eilítið sögu flokksins áður en hann kemur hingað með málflutning af þessu tagi og skammar ríkisstjórnina fyrir að vera að gera nákvæmlega það sama og Framsfl. hefur gert þrisvar sinnum.