Sementsverksmiðja ríkisins

150. fundur
Fimmtudaginn 01. apríl 1993, kl. 19:34:48 (6763)

     Stefán Guðmundsson (um þingsköp) :
    Virðulegi forseti. Ég kom upp til að spyrja virðulegan forseta hvort hann hygðist halda hér áfram fundi í kvöld. Mér er ljóst að ég get ekki mótmælt þessari gerð sem mér skilst að sé um samkomulag, en vissulega eru nýir vinnusiðir teknir upp í þinginu og ég ætla ekki að segja meira um það nú en mér finnst vægast sagt ástæða til þess að gera athugasemdir við þá nýju hætti.