Sementsverksmiðja ríkisins

152. fundur
Mánudaginn 05. apríl 1993, kl. 14:34:36 (6827)

     Forseti (Sturla Böðvarsson) :
    Forseti hefur heyrt þær óskir sem hér hafa verið bornar fram og í trausti þess að það takist að ljúka 2., 3. og 4. dagskrármáli áður en utandagskrárumræður hefjast, þá verður gert hlé á umræðu um 2. dagskrármálið til þess að hægt verði að ljúka 3. dagskrármálinu. Að því loknu verður tekið til við að ræða 2. dagskrármál að nýju.