Sementsverksmiðja ríkisins

152. fundur
Mánudaginn 05. apríl 1993, kl. 15:32:34 (6848)

     Iðnaðarráðherra (Jón Sigurðsson) (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Eins og ítrekað hefur komið fram mun það sjást alveg skýrt og skilmerkilega í 4. gr. frv. að fái einhver starfsmaður ekki sambærilegt starf hjá hlutafélaginu á hann fullan rétt samkvæmt lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna frá 1954.