Sementsverksmiðja ríkisins

152. fundur
Mánudaginn 05. apríl 1993, kl. 15:33:54 (6850)

     Ingibjörg Pálmadóttir (andsvar) :
    Virðulegi forseti. Hvað er eftir af markmiðum frv.? Er þetta frv. fyrir starfsfólkið í Sementsverksmiðju ríkisins? Er þetta frv. fyrir Akraneskaupstað? Er þetta frv. fyrir kaupendur á sementi? Eykur breytingin sölu á sementi? Ég held að svarið við öllum þessum spurningum sé nei.