Varamaður tekur þingsæti

153. fundur
Mánudaginn 05. apríl 1993, kl. 19:02:01 (6901)

     Forseti (Salome Þorkelsdóttir) :
    Borist hefur eftirfarandi bréf, dags. 5. apríl:
    ,,Þar sem ég er á förum til útlanda í opinberum erindum og get því ekki sótt þingfundi næstu tvær vikur leyfi ég mér með vísun til 2. mgr. 53. gr. laga nr. 55 1991, um þingsköp Alþingis, að óska þess að 1. varaþingmaður Alþb. í Reykv., Auður Sveinsdóttir landslagsarkitekt, taki sæti á Alþingi í fjarveru minni.
    Þetta er yður hér með tilkynnt, virðulegi forseti.
Svavar Gestsson, 9. þm. Reykv.
``

    Auður Sveinsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa.