Atkvæðagreiðsla um frumvarp um Sementsverksmiðjuna

154. fundur
Þriðjudaginn 06. apríl 1993, kl. 13:49:23 (6912)

     Margrét Frímannsdóttir:
    Virðulegi forseti. Ég ætla nú ekki að blanda mér í þessa umræðu að öðru leyti en því að ég varð vör við það þegar hv. 3. þm. Vesturl. bað um orðið og hélt að hann væri á mælendaskrá. En mig langar til að vita: Er það rétt skilið --- það er þá bara eitthvað sem ég hef ekki vitað hingað til --- að hægt sé að loka mælendaskrá fyrir einhvern ákveðinn tíma? Sá þm. hv. sem talaði hér á undan mér sagði að mælendaskrá hefði verið lokað í þessu máli. Það er þá eitthvað sem ég hef ekki heyrt áður. Er það hægt?