Virðulegi forseti. Ég hlýt að endurtaka það sem ég sagði hér áðan að að sjálfsögðu hefur þessum atkvæðagreiðslum ekki verið hagað með þeim hætti að það hafi verið sérstaklega gert til þess að koma til móts við óskir stjórnarliðsins. Ég tel að hér hafi verið um að ræða hátt sem upp hafi verið tekinn til hagræðis almennt fyrir þingmenn. Við vitum það að mál eru þannig að stundum falla þau að því sviði sem menn hafa upplýsingar um og stundum ekki og af ýmsum ástæðum sjá menn sér ekki fært að vera viðstaddir allar umræðurnar. En ég mótmæli því mjög harðlega að það sé þannig að stjórnarliðið sé að svíkjast eitthvað undan merkjum með að sitja undir ræðum og ég tel mig a.m.k. sjálfan hafa setið það bærilega að ég hefði vel getað veitt þessu athygli og ekkert síður heldur en hv. þm. Ólafur Ragnar Grímsson og sé þess vegna síst verr dómbær á það en hann eða ýmsir aðrir. Málið er ósköp einfaldlega þetta. Þetta hefur verið gert til hagræðis fyrir þingmenn og við því er ekkert að segja. Þetta er mjög eðlilegt og þetta hefur verið góður háttur og gengið almennt vel, enda hefur ekkert verið undan þessu kvartað fyrr en nú. Nú kom það upp að ýmsir þingmenn af ýmsum ástæðum, sem hér hefur verið gerð grein fyrir, gátu ekki verið viðstaddir atkvæðagreiðsluna. Það vekur auðvitað athygli og er rétt að árétta það að hér hafa verið færðar umkvartanir fyrst og fremst frá þingmönnum stjórnarandstöðunnar sem ekki voru hér í þingsalnum á þessum tíma, og auðvitað undirstrikar það sem ég er að segja, að þetta á bæði við um stjórnarliðið og stjórnarandstæðinga að stundum er það þannig að menn geta ekki komið því við að vera í þingsalnum en eru samt sem áður að sinna sínum þinglegu skyldum, svo margvíslegar sem þær eru. Þess vegna er þetta alveg ástæðulaus umræða sem hv. 8. þm. Reykn. vakti upp og ég varð líka var við það að hann dró svona heldur í land í sinni ræðu hér áðan og það er vel. Ég geri hins vegar ekki ráð fyrir því að hann kjósi að draga þessi ummæli sín til baka, en öllum er auðvitað ljóst hver staða málsins er.
Atkvæðagreiðsla um frumvarp um Sementsverksmiðjuna
154. fundur
Þriðjudaginn 06. apríl 1993, kl. 14:00:07 (6920)
Einar K. Guðfinnsson
: