Félagsmálaráðherra (Jóhanna Sigurðardóttir)
(andsvar)
:
Virðulegi forseti. Varðandi síðasta atriðið sem hv. þm. spyr um þá get ég ekki svarað því svo vel fari, en ég hygg þó að það verði verkefni umdæmanefndarinnar að skoða það strax og hún kemur saman, einmitt varðandi verkefnatilfærslu. Menn hafa helst í fyrsta áfanga verið að skoða grunnskólann. Hvað skýrar línur liggja fyrir í haust get ég ekki svarað.
Varðandi sameiningu yfir kjördæmamörk þá hefur nefndin vissulega rætt það og fjallað um það í sinni skýrslu en það hefur engin ákvörðun verið tekin um það hvort og hvernig það verður gert.