Framhald þingfundar

154. fundur
Þriðjudaginn 06. apríl 1993, kl. 22:42:28 (6977)

     Jóhann Ársælsson :
    Virðulegi forseti. Ég ætlaði reyndar að haga orðum mínum á eitthvað svipaðan máta og hv. 6. þm. Vestf. Ég tel að það sé illa hægt að sætta sig við það að svona sé staðið að málum hér. Þingfundur hefur staðið lengi og nú er klukkan að verða 11 og þá upplýsir forseti að hér eigi eftir að ræða mörg mál. Ég vil þá spyrja einfaldrar spurningar: Hve lengi á þessi fundur að standa? Ég tel að það geti verið nauðsynlegt fyrir ýmsa af þeim þingmönnum sem þó eru hér eftir í þinghúsinu að fá að vita það hve lengi þeir eigi hér að vera.