Pétur Bjarnason :
Virðulegi forseti. Þetta er hið merkilegasta mál og mér finnst að menn ættu kannski að draga svolítinn lærdóm af því sem þarna kemur fram. Hæstv. heilbrrh. sagði að sérfræðingar hefðu við nánari athugun komist að raun um að byggingin hentaði ekki.
Maður hlýtur að spyrja sjálfan sig, hefði ekki verið full ástæða til að sú nánari athugun hefði farið fram áður en var farið af stað? Það fer ekki hjá því að maður hugsi til annarra hliðstæðra atvika eins og heimilis sem byggt var í Krýsuvík á sínum tíma, þar sem einmitt við nánari athugun þegar heimilið var byggt var ekki hægt að nota það fyrir neitt nema þá helst svínageymslu vegna þess að sérfræðingar virðast við nánari athugun geta snúist svo frá fyrri ákvörðunum sínum. Þetta finnst mér vera hlutur sem þurfi virkilega að skoða og reyna að draga einhvern lærdóm af.
Eins spyr maður í sambandi við þetta mikla og dýra hús: Hvernig var háttað eftirliti með byggingunni á byggingartímanum?
Heimili fyrir alfatlaða
156. fundur
Fimmtudaginn 15. apríl 1993, kl. 11:11:21 (7055)